Þjónustuskilmálar og Skilareglur

Þjónustuskilmálar

 

Verð

Vinsamlegast athugið að verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara.

Golfbúðin áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Skattar og gjöld

Öll verð í vefverslun eru reiknuð með virðisaukaskatti.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um vörukaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000.

Skilareglur og endurgreiðsluréttur

 

Vöruskil og vöruskipti

Skilmálar þessir gilda um vörukaup á vöru eða þjónustu í verslun Golfbúðarinnar í Hafnarfirði

Hægt er að skila vöru sé hún ónotuð, í fullkomnu ástandi og með upprunalegum merkingum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Sölureikningur sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt er skilyrði fyrir vöruskilum. Gjafamiði verslunar jafngildir sölureikningi. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við kaup. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem hún var keypt. Viðskiptavinir sem skila vöru innan skilafrests geta valið um að skipta vöru í aðra vöru í verslun eða að fá inneignarnótu í verslun. Inneignarnóta gildir í 4 ár frá útgáfudegi. Inneignarnóta gildir ekki fyrstu tvær vikur á útsölu. Útsöluvörum er ekki hægt að skila en fæst skipt fyrir aðra útsöluvöru á meðan útsölu stendur. Golfbúðin áskilur sér rétt til að bjóða takmarkaða endurgreiðslu eða hafna vöruskilum alveg nái vörur sem á að skila ekki að uppfylla ofangreind skilyrði.

Skilmálar þessir gilda um vörukaup á vöru eða þjónustu á vefnum golfbudin.is

Viðskiptavinir netverslunar eiga kost á endurgreiðslu innan 14 daga frá kaupum. Ef þess er óskað skal hafa samband símleiðis eða í gegnum tölvupóst (golfbudin@golfbudin.is). Athugið að endurgreiðsla getur tekið allt að 4 virka daga eftir að varan berst aftur til okkar. Kostnaður endursendingar er á ábyrgð viðskiptavinar.

Þegar vara er endursend óskum við eftir því að eftirfarandi upplýsingar fylgi með.

Nafn
Símanúmer
Heimilisfang og póstnúmer
Bankaupplýsingar ásamt kennitölu